Velkomin í OmarOS!¶
OmarOS er omakase Linux-dreifing byggð á Arch, flísagluggastjóranum Hyprland og skjáborðsbyggingarsafninu Quickshell. Í henni fylgir allt sem nútímalegur og glöggur tölvunotandi þarf til að vera afkastamikill strax. Allt frá Neovim (btw) til Chromium, Obsidian til LibreOffice og Hype til Monologue. Jafnvel tónlistarspilari í gamaldags Winamp-stíl er þarna, djöfull!
Þetta er hins vegar ekki bara handahófskenndur haugur af foruppsettum pökkum. Þetta er heilstætt kerfi hannað með bæði fagurfræði og framleiðni í huga. Því fallegt kerfi er hvetjandi kerfi, og framleiðni hefur alltaf verið afleiðing af hvatningu. Hér er enginn óþarfi: Bara það sem ég nota.
Það er rétt að það getur tekið tíma að venjast fegurð kerfis eins og OmarOS, sem er þungt í TUI-forritum, fullt af þemum og stjórnað með flísagluggum. En það er einmitt ástæðan fyrir því að þú ert hér, er það ekki? Til að upplifa eitthvað aðeins utan þægindarammans? Til að leggja af stað í smá ævintýri inn í nýjan hátt til að vinna með tölvur? Ég vona það.
OmarOS er ekki eins og Windows og það er heldur ekki eins og macOS. Það reynir ekki að vera eins kunnuglegt og hægt er. Það reynir að vera fallegt og betra. Taktu vel á móti Linux-bragðinu af öllu saman. Að breyta stillingarskrám handvirkt, vissulega. Mikil notkun á terminal, klárlega.
Byrjum á grunnatriðunum.